The Lava House (Staðarhraun)

Discover the World
Heim     Staðsetning     Teikning af húsinu     Herbergin     Myndir     Hafið Samband English  Íslenska
Frá Akureyri   • Að taka bíl frá Akureyrarflugvelli

Frá Akureyri

Þegar þið farið frá Akureyrarflugvelli, mælum við með því að þið beygið til hægri inn á aðalveginn og stefnið inn í bæinn, þar sem þið getið verslað matvöru og aðrar nauðsynjar.

Þegar þið viljið fara af stað aftur stefnið að flugvöllinum á aðalveginum og takið vinstri beygju í átt að Egilsstöðum (Hringvegur 1). Þar er stór bensínstöð (góður staður til að fylla á bílinn aftur ef þið eruð að skila bílaleigubílnum á flugvellinum í lok ferðarinnar). Þið farið yfir brú við fjarðarbotninn (með flugvöllinn á hægri hönd). Vegurinn beygir til vinstri og stefnir uppá við.

Þið keyrið áfram uppá við eftir austurströnd fjarðarins á hringvegi 1 í átt að Egilsstöðum. Stuttu eftir að þið farið framhjá Ljósavatni á hægri hönd, komið þið að vegamótum with veg númer 85, takið hægri beygju og haldið áfram eftir hringvegi 1 í átt að Mývatni. Þið munið sjá Goðafoss á hægri hönd og skömmu síðar komið þið að vegamótum við veg 845 –beygið til vinstri í átt að Húsavík.

Eftir 10 km og eftir að hafa farið framhjá Vestmannsvatni á hægri hönd, beygið til hægri yfir á veg 845 í átt að Grenjaðarstað. Farið framhjá kirkjunni og torfbænum á vinstri hönd, stoppið síðan við bæinn Staðarhól þar sem þið fáið lykla að húsinu (Bryndís Ívarsdóttir Gistiþjónustan Staðarhóli efh. Sími 464 3707). Frá staðarhóli takið vinstri beygju aftur uppá veg 854. Staðarhraun er u.þ.b. 150 metrum lengra á vinstri hönd. Merki Arctic Experience/Discover the World sést undir íslenska skiltinu leitið bara að myndinni af kríunni.

Staðarhraun Location